Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlasetur

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Eyrir Invest fjárfesta í Remake Electric
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Eyrir Invest hafa undirritað samning um kaup á hlutafé í hátæknifyrirtækinu Remake Electric ehf. og var hluthafasamkomulag þess efnis undirritað 31. ágúst 2010. Fjárfestingin verður í nokkrum áföngum og eru greiðslur háðar framgangi verkefna. Að þeim loknum mun Nýsköpunarsjóður eiga 18% hlut í félaginu og Eyrir Invest 20% hlut. Það er markmið þessara hluthafa að byggja upp ReMake Electric sem öflugt íslensk hátæknifyrirtæki, leiðandi á sínu sérsviði á alþjóðavísu.

ReMake Electric hefur þróað rafskynjara sem kemur í stað hefðbundinna rafmagnsöryggja og kviknaði hugmyndin hjá Hilmi Inga Jónssyni, frumkvöðli, þegar hann starfaði sem rafirki, vegna skorts á upplýsingum til bilanaleitar. Auk þess að nýtast vel sem greiningartæki þá eykur rafskynjarinn öryggi með því gefa hljóðviðvaranir vegna yfirálags. Einnig gefur rafskynjarinn viðskiptavinum tækifæri á að fylgjast betur með eigin orkunotkun. Rafskynjarinn er einkaleyfisvarinn í Evrópu, Bandaríkjunum, Japan og Kína.

Þórður Magnússon,  stjórnarformaður Eyris Invest:

“Eyrir Invest leggur ríka áherslu á að styðja og styrkja efnileg sprotafyrirtæki til vaxtar til viðbótar við fjárfestingar í öflugum iðnfyrirtækjum. Við sjáum mikla möguleika í hagnýtingu á tækni ReMake á komandi árum. Hækkandi orkuverð kallar á betri upplýsingar og stýringu á orkunotkun sem á jafnt við í fyrirtækjarekstri og hjá heimilum“

Helga Valfells, framkvæmdarstjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins:

“Við hjá Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins erum mjög ánægð með fjárfestinguna í Remake electric. Við höfum mikla trú á fyrirtækinu og þeim vaxtamöguleikum sem fylgja fjárfestingum í umhverfistæknigeiranum almennt. Remake vann Gulleggið í frumkvöðla samkeppni Innovit 2010 og það er ánægjulegt að sjá hversu vel undirbúningur fyrir þá keppni hefur nýst í okkar viðræðum við Remake electric. Fyrir okkur sem fjárfesta er jafnframt mikill kostur að Remake hefur þegar hafið viðræður við alþjóðlega samstarfsaðila sem staðfestir vaxtamöguleika fyrirtækisins erlendis.”

Hilmir Ingi Jónsson, stofnandi og framkvæmdastjóri ReMake Electric:

“Við höfum lagt mikla áherslu á að bæta upplýsingagetu rafmagnsnotkunar fyrir notendur þar sem álag rafmagns er í dag heldur ósýnilegt fyrir notendur, en óeðlilegt álag veldur eldhættu og skapar viðbótarkostnað fyrir notendur. Við erum í viðræðum við alþjóðlega framleiðendur raföryggisvara og með aðkomu og reynslu Eyris Invest og Nýsköpunarsjóðs Atvinnulífsins verður ReMake í stakk búið til að koma íslensku hugviti á heimsmarkað undir merkjum alþjóðlegra framleiðenda.”

Vefsíða Remake Electric

Nýsköpunarvísitala kynnt á haustfundi Innovit
Húsfyllir var á haustfundi Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlaseturs, sem fram fór í Háskólanum í Reykjavík í dag. Á fundinum var fjallað um samanburð á umhverfi nýsköpunar á Íslandi og í Kísildalnum, niðurstöður rannsóknar um einkenni árangursríkra frumkvöðla og nýsköpunarvísitala Innovit var kynnt í fyrsta sinn.

Nýsköpunarvísitala Innovit er reiknuð út frá þremur meginflokkum sem mæla áhuga, árangur og umhverfi nýsköpunar. Hver meginflokkur samanstendur af fjórum undirþáttum sem mæla lykilþætti innan hvers flokks. Nýsköpunarvísitala Innovit er unnin í samstarfi við sprotafyrirtækin DataMarket og CLARA. Þann 1. September 2010 er vísitalan stillt í 100 stig og verður vísitalan uppfærð reglulega framvegis. Fram kom í máli Andra Heiðars Kristinssonar, framkvæmdastjóri Innovit, sem kynnti vísitöluna að ef hún væri bakreiknuð um nokkur ár megi sjá mikla aukningu í áhuga á nýsköpun en til móts við þann áhuga hefði umhverfi fyrirtækja versnað.

Nýsköpunarvísitala Innovit byggir á eftirfarandi forsendum:

Áhugi

Þátttaka í Gullegginu

Umsóknir í Tækniþróunarsjóð

Fjölda Íslendinga í frumkvöðlastarfsemi      (Global Entrepreneurship Monitor)

Fjölmiðlaumfjöllun (CLARA)

Árangur

Nýskráningar fyrirtækja

Velta Innovit hagkerfisins

Fjárfestingar fagfjárfestingarsjóða

Fjárfestingar einkaaðila í skilgreindum      sprotafyrirtækjum

Umhverfi

Stýrivextir á Íslandi

Skattar á fyrirtæki

Úthlutunarupphæð úr Tækniþróunarsjóði

Skráðir nemendur í háskóla

Haustfundur Innovit 2010
Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlasetur, býður til haustfundar miðvikudaginn 1. september kl. 12:00 – 13:30 í Háskólanum í Reykjavík, Nauthólsvík.

Á fundinum verða haldin nokkur stutt og skemmtileg erindi þar sem fjallað verður um það sem efst er á baugi í nýsköpun í dag.

Dagskrá:

12:00: Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, flytur stutt ávarp.

12:10: Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Innovit, fjallar um frumkvöðlaumhverfið í Kísildalnum í Bandaríkjunum og samanburð við umhverfið á Íslandi.

12:30: Kristján Freyr Kristjánsson, verkefnastjóri hjá Innovit, fjallar um niðurstöður meistararitgerðar sinnar sem bar yfirskriftina „Einkenni árangursríkra frumkvöðla“.

12:50: Andri Heiðar Kristinsson birtir nýsköpunarvísitölu Innovit í fyrsta sinn og kynnir viðburðarríkan vetur sem framundan er.

12:15: Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins flytur stutt ávarp og slítur fundi.

Fundarstjóri er Þórhildur Birgisdóttir, verkefnastjóri hjá Innovit.

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins býður fundargestum upp á léttar veitingar.

Aðgangur ókeypis en vinsamlegast tilkynnið mætingu á skraning@innovit.is

eða á Facebook.

Námsmenn í spennandi nýsköpunarverkefnum hjá Stjörnu-Odda
Innovit ákvað að líta við hjá hátæknifyrirtækinu Stjörnu-Odda (http://www.star-oddi.com) frést hefur að þeir hafa ráðið fimm námsmenn þetta sumarið, okkur lék forvitni á að vita hversu stór hluti af starfsmönnum væru námsmenn, hvað þeir væru að gera og hvernig starfið fer saman við námið.

Við komumst fljótt að því að fastir starfsmenn hjá félaginu eru tuttugu, í sumar bættust við 5 námsmenn við hópinn, auk þess hefur Stjörnu-Oddi á sínum vegum nokkra ráðgjafa sem eru mismikið inni í fyrirtækinu hverju sinni.

Framkvæmdarstjórinn segist hafa hlítt ákalli námsmanna um takmarkaða atvinnumöguleika í sumar, því fóru heilasellurnar flótt af stað til að finna út hvernig námsmenn gætu orðið okkur að liði, leyst af starfsmenn og stofnað til nýrra verkefna undir handleiðslu reynslubolta í þróun.

Ásgeir Bjarnason, meistaranemandi í verkfræði í Finnlandi, starfar við þróun á nýrri kynslóð mælitækja.

Ásgeir heldur áfram störfum við verkefni sem hann hefur unnið að áður hjá félaginu, rannsóknir og þróun á mælitæki sem hægt verður á einfaldan máta að nota innvortis í rannsóknardýrum. Mælitækið veitir mikilvægar upplýsingar um viðkomandi dýr, eins og hitastig, hjartslátt og er stefnt að því að setja enn fleiri skynjara í mælanna, skynjara sem eru á hugmyndarstigi eins og stendur.

„Ásgeir segir að ef hann hefði starfað erlendis hjá stærra fyrirtæki, þá hefði hann aldrei fengið að glíma við svona metnaðarfullt og fjölbreytilegt verkefni, vinnan hjá Stjörnu-Odda gefur mér forskot á þá sem eru með mér í meistaranámi og opnar ný tækifæri“.

Jón Valur Valsson, tæknifræðinemandi í HR, starfar við þróun á nýrri kynslóð neðansjávarhljóðgjafa / hátalara.

Jón Valur starfar við að þróun á neðansjávarlágtíðnihljóðgjafa en  mikill skortur er á slíkum búnaði, kannski vegna takmarkaðar þarfar, en þar sem Stjörnu-Oddi hefur þörf fyrir slíkan búnað í nýja vöru þá er íslenska leiðin að redda þessu sjálfir fyrst aðrir koma manni ekki til bjargar. Markaðurinn býður ekki upp á slíka hljóðgjafa í þeirri stærð sem þörf er fyrir. Búnaðurinn er ætlaður til að kalla á fiska, „já þú heyrðir rétt“, þar sem fiskar eru í frjálsu eldi t.d.  í fjörðum landsins, búnaðurinn kallar þá í mat, þar sem þeir eru fóðraðir. Þegar kemur að slátrun þá verða þeir fiskar sem eru í réttri stærð valdir til slátrunar. Verkefnið er unnið í samvinnu við Hafrannsóknastofnunina. Sá möguleiki er til staðar að bjóða síðar upp á slíka hljóðgjafa sérstaklega, gangi verkefnið eftir eins og til er ætlast, allavega lítur verkefnið vel út.

Jón Valur hafði á orði að „hann nýti hluta af þeirri þekkingu sem hann hefur lært í náminu og að auki þurft að setja sig inní raftækni sem stýrir vélbúnaðinum, auk þess að fá tækifæri að vinna með efnið Terfenol-D sem ólíklegt er að nokkur hafi áður notað á Íslandi“.

Helgi Siemsen Sigurðarson, tölvunarfræðinemandi við HR, starfar við framleiðslu á mælitækjum.

Helgi er rafeindavirki og starfaði hjá Stjörnu-Odda áður en hann skellti sér í HR í tölvunarfræði, helgi hefur lokið við fyrsta árið. Helga hefur mikla reynslu af því að starfa hjá Stjörnu-Odda og er því öllum hnútum kunnugur. Það kemur sér vel fyrir Helga, eins og aðra námsmenn að geta gengið í starf að sumarlagi.

Stefanía Hákonardóttir verkfræðinemandi í HÍ, starfar við framleiðslu á mælitækjum.

Stefanía er í rafmagnsverkfræði í HÍ og fær ákjósanlegt tækifæri til að kynna sér rafeindatækni og þá möguleika sem í henni liggja. Stefanía starfar í framleiðsludeild við samsetningu, skynjaraframleiðslu og lóðavinnu auk ýmissa annara tilfallandi verkefna. Rafeindafræðin úr HÍ kemur sér vel fyrir hana þar sem hún þekkir þá íhluti sem eru notaðir og kannast við fræðina á bakvið búnaðinn. Fjölbreytnin í starfinu kemur Stefaníu á óvart og hversu mörg atriði þurfa í raun að ganga upp svo varan virki og standist þær gæðakröfur sem fyrirtækið setur sér til að tryggja að viðskiptavinurinn verði ánægður.

Anton Björn Sigmarsson er á leiðinni í menntaskóla, starfar við framleiðsla á mælitækjum.

Anton Björn hefur starfað hjá félaginu síðastliðin 2 sumur, Anton er 16 ára og er að spreyta sig í framleiðsludeild þar sem kröfurnar til starfsmanna eru miklar, nákvæmni og vandvirkni eru höfð í fyrirrúmi. Anton er í samsetningu og lóðar saman mælitæki eftir þörfum auk þess sem hann vinnur að annarri nákvæmnisvinnu eftir þörfum.

Lengri tíma markið Stjörnu-Odda er að þjálfa upp námsmenn, eiga alltaf einhverja námsmenn að sem sækjast eftir vinnu hjá félaginu, sem auðveldar föstum Starfsmönnum að taka sér sumarfrí og eru síður kallaðir inn ef eitthvað kemur uppá, eins og auknar pantanir sem þarf að klára fyrir lofaðan afgreiðslutíma. Það er hagur Stjörnu-Odda og háskólanna að eiga gott samstarf, sem kemur sér vel fyrir alla aðila.

Kauffman Foundation fjallar um Innovit
Jonathan Orthmans, senior Fellow hjá Kauffman Foundation og forseti Global Entrepreneurship Week, fjallar um frumkvöðlastarfsemi á Íslandi í nýlegum pistli á vefsíðunni www.entrepreneurship.org. Kauffman Foundation er ein stærsta og virtasta stofnun sem styður við frumkvöðlastarfsemi í heiminum og er það mikil viðurkenning á stuðningsumhverfinu á Íslandi að starfsemin hér vekji eftirtekt á alþjóðlega vísu. Í greininni er fjallað um þann árangur sem Ísland hefur náð í frumkvöðlastarfi á undanförnum árum, vísað til þeirrar viðurkenningar sem Innovit hlaut í Dubaí fyrir skipulagningu Alþjóðlegrar athafnaviku hér á landi og MIT Global Startup Workshop ráðstefnunnar sem Innovit hafði frumkvæði að.

Grein Jonathan Orthmans: http://www.entrepreneurship.org/PolicyForum/Blog/post/2010/07/18/Iceland-Conquering-the-Economic-Crisis-with-Entrepreneurship.aspx

Kauffman Foundation

Innovit á Evrópsku fyrirtækjavikunni 2010
Innovit ásamt fleiri fyrirtækjum og stofnunum sem tilheyra stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi voru í sviðsljósinu á kynningarfundi á Grand hótel miðvikudaginn 26. maí sl. Hátt í tuttugu aðilar kynntu þjónustu sína við frumkvöðla og fyrirtæki, en markmið kynningarinnar var að veita heildaryfirsýn og skapa umræðu um stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi.

Útflutningsráð, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Rannís, Samtök iðnaðarins ásamt Hátækni- og sprotavettvangi stóðu að fundinum í tilefni að evrópsku fyrirtækjavikunni SME Week 2010 sem haldin er hátíðleg um alla Evrópu dagana 25. maí-1. júní.

Á fundinum voru tvær málstofur, annars vegar fyrir einstaklinga með nýjar viðskiptahugmyndir og fyrirtæki í startholunum og hins vegar fyrir þroskaðri sprotafyrirtæki og fyrirtæki í nýsköpun.

Gunnar Hólmsteinn frá CLARA, Hilmir Ingi Jónsson frá Remake Electric, Agnar Sigmarsson frá Transmit, Ragnheiður Eiríksdóttir frá Knitting Iceland og Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir frá Studiobility komu fram á málstofu fyrir nýjar viðskiptahugmyndir og fyrirtæki í startholunum.

Þórhildur Birgisdóttir og Sóley Jónsdóttir kynna starfsemi Innovit

Frumtak fjárfestir í Meniga
Sprotafyrirtækið Meniga hefur nú skrifað undir samning um 90 mkr. fjármögnun sem tryggir félaginu hraðari vöxt á evrópskan markað. Það er fjárfestingarsjóðurinn Frumtak sem hefur fest kaup á hlutum í Meniga og styður þannig við áframhaldandi vöxt félagsins sem náð hefur eftirtektarverðum árangri á mjög stuttum tíma.

Vefur Meniga, www.meniga.is, fór í loftið á Íslandi í desember 2009 í samstarfi við Íslandsbanka og hefur fengið frábærar viðtökur. Notendur eru nú þegar yfir 7.000 og flestir þeirra heimsækja vefinn reglulega. Samkvæmt þjónustukönnunum eru yfir 80% notenda ánægðir eða hæstánægðir með lausnina og segjast munu nota hana reglulega í framtíðinni.

Meniga var í hópi 10 úrvalsfyrirtækja sem kepptu í úrslitum í frumkvöðlakeppni Innovit, Gullegginu 2009. Frá því að Meniga tók þátt í Gullegginu fyrir einungis einu ári hefur það nýtt skrifstofuaðstöðu og ráðgjöf hjá Innovit sem sprotafyrirtæki geta nýtt sér í allt að eitt ár. Meniga er því gott dæmi um fyrirtæki sem kemur inn í Gulleggið sem framúrskarandi hugmynd og útskrifast frá Innovit um ári síðar sem vel fjármagnað sprotafyrirtæki tilbúið í öran vöxt.

Innovit óskar Meniga hjartanlega til hamingju með þennan góða árangur.

Remake Electric sigrar Gulleggið 2010
Sprotafyrirtækið Remake Electric sigraði í frumkvöðlakeppni Innovit um Gulleggið 2010. Remake electrics hefur þróað nýja og byltingarkennda tegund rafskynjara sem stefnt er á heimsmarkað með á næstu misserum. Stofnendur Remake hlutu að launum milljón króna peningaverðlaun, veglega ráðgjöf frá Innovit og verðlaunagripinn Gulleggið. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhenti sigurlaunin við fjölmenna athöfn á Háskólatorgi.

Verðlaunagripurinn var í ár hannaður af Ásdísi Jörundsdóttur, sem er á lokaári í vöruhönnun í Listaháskóla Íslands. Um hönnun gripsins sagði Ásdís: “Góðar hugmyndir er eitthvað sem hlúa þarf að. Gulleggið er verðlaunagripur úr postulíni sem handleika þarf af mikilli varfærni líkt og ef um góða hugmynd væri að ræða.”

1. Sæti – Remake Electric

Hugmyndin varðar nýja kynslóð rafmagnsöryggja sem nefnist Rafskynjari og hefur rauntíma vísun í stöðu rafmagnsálags ásamt hljóðviðvörun vegna yfirálags. Þessar upplýsingar gera notendum kleift að skilja, stjórna og hagræða rafmagnsnotkun sinni til að auka öryggi í rekstri, bæta framleiðni rafmagns og skapa sparnað með rafmagnsnotkun. Rafskynjarinn sýnir upplýsingar með lituðum ljósadíóðum og gefur hljóðviðvaranir við yfirálag rafmagns sem skapar möguleika til þess að fyrirbyggja eldsvoða vegna rafmagns, bilanir og skemmdir í raftækju. Rafskynjarinn getur einnig sent upplýsingar með þráðlausum boðum og tengst tölvukerfum, hússtjórnunarkerfum og brunavarnarkerfum.

2. Sæti – Brand Capital

Brand Capital er íslenskur hugbúnaður sem er framleiddur af fyrirtækinu Transmit ehf. Hugbúnaðurinn er ætlaður til umsjónar á vörumerkjum og ímynd fyrirtækja og er aðgangur að honum seldur í áskrift. Brand Capital býður viðskiptavinum að samræma útfærslu á markaðsherferðum, auka gagnsæi við notkun markaðstengdra gagna og að auka hægræði og snerpu við útfærslu markaðsherferða.

3. Sæti – Nude Magazine

Nude magazine er nettímarit um tísku  – hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Það mun koma út mánaðarlega á netinu undir nafninu Nude magazine og vera frítt. Fyrsta tölublaðið kemur út þann 25. mars næstkomandi og hafa viðtökurnar verið framar öllum vonum. Það er margt einstakt við tímaritið og allt útlit fyrir að það verði algjörlega brautryðjandi hér á landi. Tímaritið byggir á framúrskarandi tækni sem býður upp á hljóð- og myndbrot, gagnvirkni og fangar athygli lesandans um leið. Þessi tækni býður líka upp á þann mögulega að hægt er að fylgjast nákvæmlega með hversu margir lesa blaðið, hversu lengi lesendur stoppa á hverri síðu, hvar þeir klikka helst á hana o.s.frv sem hlýtur að vera draumur hvers auglýsanda. Einnig hyggjumst við vera í beinu sambandi við lesendur í gegnum blogg og samskiptavefi. Fyrirtækið hefur miklar og göfugar áætlanir fyrir íslenskan markað; að efla tískuvitund, skapa vettvang fyrir íslenska hönnuði og verslunarfólk og vera almennur gleðigjafi.

Sérstök útflutningsverðaun í boði Útflutningsráðs – Fafu

Fafu hannar og framleiðir skapandi leikföng fyrir börn. Leikföngin eru framleidd með sanngjörnum hætti og eru umhverfissjónarmið höfð að leiðarljósi við alla hönnun og framleiðslu varanna.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá úrslitum í Gullegginu. Lósmyndari: Hermann Sigurðsson (www.hemmi.is)

Úrslit í Gullegginu 2010 nálgast
Úrslit fara fram í Gullegginu 2010, frumkvöðlakeppni Innovit fyrir íslenska háskólanema og nýútskrifaða, á laugardaginn. Þá munu frumkvöðlarnir að baki þeim 11 efstu af 295 viðskiptahugmyndum kynna fyrirtæki sín fyrir yfirdómnefnd keppninnar. Að loknum kynningum mun Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhenda vegleg sigurlaun og verðlaunagripinn Gulleggið 2010 við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi.

Stofnað var til keppninnar um Gulleggið af hópi háskólanema árið 2007 og er þetta því í þriðja sinn sem keppnin er haldin. Keppnin er samstarfsverkefni fjögurra háskóla, HÍ, HR, Bifrastar og keilis og öflugra fyrirtækja sem styðja við ungt fólk, atvinnusköpun og jákvæða uppbyggingu nýrra fyrirtækja.

Yfirdómnefnd keppninnar samanstendur af fjárfestum, stjórnendum úr íslensku atvinnulífi og samstarfsaðilum Frumkvöðlakeppni Innovit. Yfirdómnefnd mun ákveða hvaða hugmyndir raðast í efstu sæti keppninnar. Yfirdómnefnd skipa:

-        Baldur Már Helgason, sjóðstjóri BJARKAR

-        Benedikt K. Magnússon, meðeigandi KPMG

-        Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks

-        Gísli Hjálmtýsson, framkvæmdastjóri Thule Investments

-        Guðmundur Siemsen, framkvæmdastjóri Advel lögfræðiþjónustu

-        Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins

-        Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans

-        Hermann Ottósson, forstöðumaður Útflutningsráði Íslands

-        Jón Bjarni Gunnarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins

-        Kristín Rafnar, forstöðumaður skráningarsviðs OMX Nasdaq

-        Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans

-        Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa

-        Þórlindur Kjartansson, stjórnarmaður hjá Innovit

-        Þórólfur Árnason, stjórnarmaður hjá Innovit

Hér fyrir neðan má sjá stutt ágrip um þær 11 hugmyndir sem komust áfram í frumkvöðlakeppni Innovit sem má opinbera. Hugmyndirnar eru í handahófskenndri röð.

Icelandic Cinema Online

Icelandic Cinema Online er VoD  (Video on Demand) vefsíða með íslenskt kvikmyndaefni, þ.e kvikmyndir, heimildamyndir, stuttmyndir og sjónvarpsefni fyrir erlendan markað. Markmið síðunnar er tvíþætt. Í fyrsta lagi að skapa vettvang þar sem neytendur geta nálgast löglega fjölbreytilegt íslenskt efni á netinu til niðurhals eða straums í rauntíma. Í öðru lagi að skapa ný tækifæri fyrir kvikmyndagerðafólk og framleiðendur til að koma kvikmyndum á framfæri.

Stafræn dreifing á kvikmyndum er framtíðin og  því er nauðsynlegt er að efla þekkingu og þjónustu á þessu sviði hér á landi til efla samkeppnishæfni íslenskrar kvikmynda á alþjóða vettvangi. Gildi síðunnar er ótvírætt í framþróun á dreifingu íslenskra kvikmynda erlendis og þar af leiðandi ætti hún því að efla íslenskan kvikmyndaiðnað.

Ævintýri

Ævintýri – hótel í Hallormsstaðarskógi verður leiðandi á sviði sjálfbærrar ferðaþjónustu og þar verður byggð upp starfsemi sem er líklegt að verði burðarás í ferðaþjónustu á Íslandi í framtíðinni. Ævintýri mun verða drifkraftur í viðamiklu samstarfi við þjónustuaðila á Austurlandi, uppbyggingu atvinnulífs og umhverfismála. Ævintýri verður sjálfbært lúxushótel og það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi, vistvæn ferðaþjónusta í vistvænt vottaðri byggingu. Ævintýrapakkar verða settir saman og sameina þeir krafta þjónustuaðila á Austurlandi í að gera upplifun gesta sem eftirminnilegasta. Framtíðarsýnin er sú að gestir geti ferðast um náttúruna á ábyrgan og uppbyggjandi hátt. Gert verður útá gæði og upplifun fyrir kröfuharða neytendur á forsendum sjálfbærrar þróunar. Samhent átak er það sem þarf til að ýta úr vör þeirri þróun á sviði umhverfismála sem ætti að vera leiðandi afl á Íslandi til að gera landið enn sérstæðara og áhugaverðara.

Búngaló

Búngaló er ný nálgun á ferðamannaiðnaðinn á Íslandi. Hugmyndin felst í því að þróa og markaðssetja viðskiptalausn fyrir íslenska sumarbústaðaeigendur.  Í dag eru 12 þúsund skráðir bústaðir á Íslandi sem eru lausir 80% af árinu. Þetta þýðir að miklir möguleikar eru til staðar til að skapa tekjur hjá íslenskum sumarbústaðaeigendum með útleigu bústaðanna. Viðskiptalausn Búngaló felst í því að bjóða þessum aðilum alla nauðsynlega tæknilega aðstoð við að markaðssetja og leigja út þessa bústaði. Á sama tíma verður skapaður stærsti gagnagrunnur yfir íslenska leigubústaði og búinn til miðlæg vefsíða fyrir alla þá sem kjósa að leigja sér sumarbústað. Vefsíðan var opnuð 10.mars síðastliðin og er hægt að nálgast hana á slóðinni www.bungalo.is.

Remake electronics

Hugmyndin varðar nýja kynslóð rafmagnsöryggja sem nefnist Rafskynjari og hefur rauntíma vísun í stöðu rafmagnsálags ásamt hljóðviðvörun vegna yfirálags. Þessar upplýsingar gera notendum kleift að skilja, stjórna og hagræða rafmagnsnotkun sinni til að auka öryggi í rekstri, bæta framleiðni rafmagns og skapa sparnað með rafmagnsnotkun. Rafskynjarinn sýnir upplýsingar með lituðum ljósadíóðum og gefur hljóðviðvaranir við yfirálag rafmagns sem skapar möguleika til þess að fyrirbyggja eldsvoða vegna rafmagns, bilanir og skemmdir í raftækju. Rafskynjarinn getur einnig sent upplýsingar með þráðlausum boðum og tengst tölvukerfum, hússtjórnunarkerfum og brunavarnarkerfum.

LLS

Hugmyndin snýst um að bjóða uppá nýja tegund kennslu við tungumál sem fer að að öllu leyti í gegnum Netið. Kerfið er einfalt í notkun og býður uppá mikinn sveiganleika við námið. Það notast m.a. við gervigreind sem lærir á lærdómseiginleika notandans. Grunneiningar kerfissins eru fríir fyrir alla notendur.

Brand Capital

Brand Capital er íslenskur hugbúnaður sem er framleiddur af fyrirtækinu Transmit ehf. Hugbúnaðurinn er ætlaður til umsjónar á vörumerkjum og ímynd fyrirtækja og er aðgangur að honum seldur í áskrift. Brand Capital býður viðskiptavinum að samræma útfærslu á markaðsherferðum, auka gagnsæi við notkun markaðstengdra gagna og að auka hægræði og snerpu við útfærslu markaðsherferða.

Stórsaga – Ferðast til fortíðar.

Ætlunin er að reisa nokkur hús í 12. aldar stíl á afmörkuðu svæði; torfbæ eða skála, kirkju, smiðju, búðir og fjós. Tilgangurinn er tvenns konar: Í fyrsta lagi verður torfbærinn notaður sem hótel og boðið uppá gistingu þar sem fólk getur gist í skálanum eða búðunum og upplifað hvernig Íslendingar bjuggu fyrr á öldum. Í öðru lagi verður svæðið notað til sýninga. Þarna ynni starfsfólk sem sýndi gamalt handverk. Einnig væri í boði fyrir gesti að taka þátt í að sinna daglegum störfum, allt frá því að slá með orfi og ljá upp í eldamennsku.

Nude Magazine

Nude magazine er nettímarit um tísku  – hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Það mun koma út mánaðarlega á netinu undir nafninu Nude magazine og vera frítt. Fyrsta tölublaðið kemur út þann 25. mars næstkomandi og hafa viðtökurnar verið framar öllum vonum. Það er margt einstakt við tímaritið og allt útlit fyrir að það verði algjörlega brautryðjandi hér á landi. Tímaritið byggir á framúrskarandi tækni sem býður upp á hljóð- og myndbrot, gagnvirkni og fangar athygli lesandans um leið. Þessi tækni býður líka upp á þann mögulega að hægt er að fylgjast nákvæmlega með hversu margir lesa blaðið, hversu lengi lesendur stoppa á hverri síðu, hvar þeir klikka helst á hana o.s.frv sem hlýtur að vera draumur hvers auglýsanda. Einnig hyggjumst við vera í beinu sambandi við lesendur í gegnum blogg og samskiptavefi. Fyrirtækið hefur miklar og göfugar áætlanir fyrir íslenskan markað; að efla tískuvitund, skapa vettvang fyrir íslenska hönnuði og verslunarfólk og vera almennur gleðigjafi.

FAFU

fafu hannar og framleiðir skapandi leikföng fyrir börn. Leikföngin eru framleidd með sanngjörnum hætti og eru umhverfissjónarmið höfð að leiðarljósi við alla hönnun og framleiðslu varanna.

Andblær

Verkefnið byggir á alveg nýrri nálgun við hönnun loftræstikerfa fyrir hús sem gerir kleyft að smíða langþynnsta loftræstikerfi fyrir byggingar sem fyrirfinnst. Búnaðurinn, sem kallast Andblær, verður verulega orkusparandi og getur þannig lækkað hitunarkostnað húsa umtalsvert Loftræstibúnaðurinn verður allt að 10 sinnum þynnri en sambærilega öflug tæki á markaðinum. Búnaðurinn verður ódýrari og með meiri varmaendurvinnslu en sambærileg tæki sem mun leiða til styttri endurborgunartíma fyrir kaupendur á svæðum þar sem orka er dýr.Aðstandendur verkefnisins hafa mikla sérfræðiþekking á þessu sviði og hafa þegar tryggt sér fjölda einkaleyfa fyrir ANDBLÆ tækni sem mun gefa fyrirtækinu forskot á markaði.

Smelltu (Brand Capital)

Smelltu er íslenskur hugbúnaður sem þróaður er af fyrirtækinu Transmit ehf. Smelltu gerir auglýsendum kleift að mæla árangur netauglýsinga sinna betur en áður hefur þekkst á Íslandi og býður upp á umfangsmikið yfirlit yfir hvar fjárfesting í netauglýsingum skilar mestum árangri. Smelltu má nálgast á http://smelltu.is

MIT Global Startup Workshop
Metþátttaka er á alþjóðlegri frumkvöðlaráðstefnu MIT, HR og Innovit sem hófst í Reykjavík í  morgun. Rúmlega fjögur hundruð manns sitja ráðstefnuna. MIT hefur haldið slíkar ráðstefnur víða um heim undanfarin tólf ár og hafa aldrei fleiri tekið þátt.

Ráðstefnan fer fram á Hilton Nordica hótelinu í Reykjavík og stendur hún yfir í þrjá daga. Meginþema hennar er hvernig yfirvinna megi efnahagskreppu með nýsköpun, frumkvöðlastarfi og endurnýjanlegri orku.

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, setti ráðstefnuna rúmlega tíu í morgun en áður flutti Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, stutt ávarp.

Ráðstefnan er skipulögð af MBA-nemum HR og MIT-háskólans í Boston.

Markmiðið er að stuðla að nýsköpun og gefa frumkvöðlum, fræðimönnum, nemendum og fjárfestum vettvang til að skiptast á skoðunum og skapa tengsl.

Dagskrá ráðstefnunnar