February 27, 2012Fjölmenn Atvinnu- og nýsköpunarhelgi á Akureyri að baki
Vel heppnuð Atvinnu- og nýsköpunarhelgi fór fram á Akureyri um helgina þar sem fjöldi þátttakenda vann að uppbyggingu sinna viðskiptahugmynda með aðstoð fjölmargra sérfræðinga. Að helginni stóðu Innovit og Landsbankinn í samstarfi við Akureyrarstofu, Tækifæri fjárfestingasjóð og Háskólann á Akureyri.
Um 90 þátttakendur unnu að framgöngu 20 hugmynda yfir helgina. Þátttakendur unnu í teymum, settu sér markmið og hlýddu á gagnleg erindi um uppbyggingu viðskiptahugmynda. Þá mættu á annan tug einstaklinga af svæðinu og gengdu hlutverki ‘mentora’ þar sem leitast var við aðstoða þátttakendur við uppbyggingu hugmyndanna. Auk þess fengu þátttakendur að heyra reynslusögur nokkurra frumkvöðla sem hafa náð góðum árangri.
Alls kynntu 19 teymi afrakstur helgarinnar á sunnudeginum fyrir dómnefnd. Viðurkenningar og verðlaun voru veitt í nokkrum flokkum:
Hugmyndin Whale Buddy, snjalltækjaforrit fyrir hvalaskoðun, halut 400.000 krónur í fyrstu verðlaun
Hugmyndin Life Line, öryggisbúnaður í flotgalla sjómanna, hlaut 200.000 krónur í önnur verðlaun
Hugmyndin Tannstrá, tannstönglar úr íslenskum stráum, hlaut 100.000 krónur í þriðju verðlaun
Veitt voru verðlaun fyrir þá hugmynd sem hafði náð mestum árangri yfir helgina. Hugmyndin Fjölskyldulínan, stuðningur við uppalendur, fékk 50.000 krónur í verðlaun
Teymið að baki hugmyndinni Whale Buddy hlaut jafnframt 50.000 krónur í verðlaun fyrir bestu kynninguna
Hugmyndin um Orkulund, heilsukaffihús og veitingastað á Akureyri, var talin líklegust til árangurs á svæðingu og hlaut að launum 50.000 krónur
Hugmyndin Life Line var talin besta hugmyndin af gestum viðburðarins og hlaut fyrir 50.000 krónur
Þátttakendur sem hlutu viðurkenningar fengu peningaverðlaun, samtals fjárhæð 900.000 kr., fyrir tilstuðlan fyrirtækja á svæðinu. Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir á svæðinu studdu viðburðinn og lögðu sitt af mörkum til að helgin væri sem glæsilegust. Stuðningsaðilar (í engri sérstakri röð): Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Samtök iðnaðarins, Blikkrás ehf., Stefna hugbúnaðarhús, Kjarnafæði, Norðlenska, Norlandair, Grand Þvottur ehf., Alcoa, Bílaleiga Akureyrar, Vífilfell, Lostæti veislu- og veitingaþjónusta, Kexsmiðjan, Vís, Kristjánsbakarí, MS, Rafeyri, Eimskip, Kone, Frost, Samherji, Slippurinn, Norðurorka, Raftákn. Í framhaldi eiga þátttakendur viðburðarins á Akureyri kost á að fá leiðsögn við gerð viðskiptaáætlunar. Veitt verða verðlaun fyrir bestu áætlunirnar, samtals fjárhæð 600.000.
Dómnefnd skipuðu Björn Gíslason, framkvæmdastjóri Tækifæri fjárfestingasjóðs, Inga Ásta Karlsdóttir, útibússtjóri Landsbankans á Akureyri, Guðjón Már Guðjónsson, frumkvöðull, Sigurður Guðmundsson, bæjarfulltrúi og verslunarmaður og Sigurður Steingrímsson, verkefnisstjóri Impru á Akureyri.
Aðstandendur Atvinnu- og nýsköpunarhelgarinnar óska verðlaunahöfum og þátttakendum öllum til hamingju með þann árangur sem vannst á viðburðinum og velfarnaðar með næstu skref í þróun viðskiptahugmyndanna.



Athugasemdir