March 27, 2012Nýsköpunarsjóður fjárfestir í 3Z
| Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hefur gert samning um kaup á hlutafé í fyrirtækinu 3Z ehf. Fyrirtækið hefur það að markmiði að markaðssetja aðferð þar sem sebrafiskar eru notaðir til skimunar á sameindum sem hafa áhrif á miðtaugakerfið og stunda þannig skipulega leit að miðtaugakerfislyfjum framtíðarinnar. Aðferðirnar eru mun ódýrari, hraðvirkari og mannúðlegri en þær sem mest eru notaðar í dag. 3Z stefnir á að bjóða skimunarþjónustuna til fyrirtækja í lyfjaþróun.
Miklar hræringar hafa verið á lyfjaþróunarmarkaði, sem eru fyrirtækinu í hag. Í fyrsta lagi hamlar vöntun á nýjum dýralíkönum lyfjaleit og hefur síhækkandi þróunarkostnaður leitt til þess að færri ný lyf koma á markað. Í öðru lagi er minna fjármagni varið til rannsókna á miðtaugakerfislyfjum, á sama tíma og vöntun á nýjum lyfjum er staðreynd. Í þriðja lagi er gerð æ ríkari krafa um dýravernd í lyfjarannsóknum. Aðferðir 3Z eru vel til þess fallnar að svara kalli tímans með því að kynna til sögunnar nýtt dýralíkan, stunda lyfjaskimun með mun hagkvæmari hætti en áður hefur verið hægt að gera og framkvæma lyfjaskimun á fiskum með atferlismælingum sem samrýmist vel dýraverndarsjónarmiðum. Aðferðir 3Z byggja á rannsóknum sem fram hafa farið við Háskólann í Reykjavík. Háskólinn hefur enn fremur stutt við uppbyggingu fyrirtækisins 3Z með margvíslegum hætti og hefur fyrirtækið rannsóknaraðstöðu í háskólanum. Einnig hlaut 3Z mikilvægan styrk frá Tækniþróunarsjóði við upphaf starfseminnar, sem gerði frumþróun aðferða og ferla mögulega. Karl Ægir Karlsson, dósent við tækni- og verkfræðideild HR, stofnaði 3Z ásamt Háskólanum í Reykjavík og Haraldi Þorsteinssyni. Karl Ægir og Haraldur Þorsteinsson hafa verið lykilstarfsmenn frá upphafi og hafa þeir bakgrunn í taugasálfræði og taugavísindum. Ummæli: Helga Valfells, framkvæmdarstjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins: „Það er alltaf gaman að sjá góðar viðskiptahugmyndir spretta upp úr háskólaumhverfinu. Við höfum mikla trú á teyminu á bak við 3Z, sem hefur góða blöndu af fræðilegri þekkingu á sínu sviði og framkvæmdagetu. Framundan eru spennandi tímar hjá fyrirtækinu og verður gaman að takast á við þau tækifæri sem aðferð 3Z við atferlisrannsóknir bjóða uppá.“ Karl Ægir Karlsson, framkvæmdastjóri og stofnandi 3Z: „NSA er öflugur bakhjarl sprotafyrirtækja. Með aðkomu þeirrra fáum við bæði það fjármagn sem þarf til að sækja fram á markaði sem og aðgang að mikilli þekkingu á sprotaumhverfinu. Við væntum mikils af samstarfinu og lítum björtum augum til framtíðar.” Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík: „Háskólinn í Reykjavík leggur áherslu á rannsóknir og nýsköpun í þágu atvinnulífs og verðmætasköpunar, allt frá þeim grunnrannsóknum sem liggja til grundvallar nýsköpunar til uppbyggingar sprotafyrirtækja. Það hefur því verið mjög ánægjulegt að fylgjast með þeirri þróun sem liggur að baki 3Z undanfarin ár. En fjárfesting í nýrri tækni og sprotafyrirtækjum er ekki síður mikilvægur þáttur í uppbyggingu þekkingariðnaðar á Íslandi og því er það mikið ánægjuefni að Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hafi ákveðið að fjárfesta í 3Z og gerast virkur þátttakandi í uppbyggingu fyrirtækisins.” Um Nýsköpunarsjóð Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins (www.nsa.is) er áhættufjárfestir sem fjárfestir í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum þar sem vænta má mikils virðisauka og arðsemi af starfseminni og góðrar ávöxtunar. Frekari upplýsingar veita: Karl Ægir Karlsson 3Z ehf. Gsm nr: 825 6467 karlsson@hr.is Hekla Arnardóttir Nýsköpunarsjóður Atvinnulífsins sími / tel: 510 1800 ![]() Frumkvöðlar frá 3Z of fulltrúar NSA við undirritun samnings |
||




Athugasemdir