Skráning lokar á morgun, 20. janúar á miðnætti.

January 19, 2010Skráning lokar á morgun, 20. janúar á miðnætti.

Nú er lokatækfærið til að taka þátt í frumkvöðlakeppni Innovit. Skráning lokar á slagin 23:59 á morgun, miðvikudaginn 20. janúar. Nánari upplýsingar um keppnina er að finna hér á heimasíðu Innovit, undir “gulleggið”. Ef þú vilt vita meira um keppnina getur þú nálgast verkefnastjórn Gulleggsins í kynningarbásum hjá samstarfsháskólum Innovit (HR, HÍ, Keilir, Bifröst), sent tölvupóst á gulleggid@innovit.is eða hringt í síma 551-5153 / 551-5151. Allir sem senda inn hugmynd í keppnina fá einnig persónulegan tengilið sem getur veitt nánari upplýsingar um keppnina. Fullum trúnaði er heitið gagnavart innsendum hugmyndum og nema heildarverðlaun í ár um 3.000.000 króna auk ýmissa sérverðlauna frá meðal annars Odda og Fulltingi Lögfræðiþjónustu.

001

Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir og Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir við kynningarbás Gulleggsins á Háskólatorgi HÍ.

Til baka

Hugskot

Rafrænt fréttabréf Innovit