January 18, 2010Athafnavika heimsækir Höfn
Innovit afhenti Sveitarfélaginu Hornafirði Athafnaverðlaun en Hornafjörður var athafnasamasta bæjarfélagið í Athafnavikunni sem fram fór í nóvember sl. með fjölda viðburða. Það var Björk Pálsdóttir frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Höfn sem fór fyrir undirbúningsnefnd Athafnavikunnar og átti veg og vanda að glæsilegri dagskrá Hornfirðinga.
Þau Andri Heiðar og Þórhildur áttu því eftirminnilegan dag á Höfn sl. föstudag í boði sveitarfélagsins. Það voru þau Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Björk Pálsdóttir og Ari Þorsteinsson hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem tóku á móti Andra og Þórhildi í Nýheimum á Höfn. Þar tók við kynning á fjölbreyttri og spennandi starfsemi Nýheima og loks afhentu Þórhildur og Andri undirbúningsnefnd Athafnavikunnar viðurkenninguna.
Eftir hádegi tók Björg Erlingsdóttir þjóðfræðingur á móti gestunum í Pakkhúsinu og fræddi þá um sögu bæjarins og framtíðarskipulag bæjarins en það eru mjög áhugaverðar hugmyndir um nýtingu gamalla húsa. Því næst var Matarsmiðja Matís heimsótt og Guðmundur Gunnarsson stöðvarstjóri lýsti starfseminni og þeim möguleikum sem í boði eru fyrir frumkvöðla sem vilja prófa sig áfram í vöruþróun á matvælasviði. Í Matarsmiðjunni gefst frumkvöðlum einstakt tækifæri til nýsköpunar í smáframleiðslu matvæla og koma þeir frá öllum landshlutum. Að lokum var Ómar á Horni heimsóttur og fengu þau Andri og Þórhildur að skoða víkingaþorpið á Litlahorni en það er leikmynd sem Baltasar Kormákur hefur látið reisa fyrir væntanlegar kvikmyndatökur. Það voru þau Björk Pálsdóttir og Ari Þorsteinsson sem skipulögðu daginn og stóðu að heimsóknunum þremur. Við þökkum þeim kærlega fyrir frábæran dag á Höfn í Hornafirði.
Til baka


Athugasemdir