January 19, 2010Oddi styður frumkvöðlakeppni Innovit
Prentsmiðjan Oddi hefur ákveðið að styðja undir Innovit með rausnarlegu framlagi til nýsköpunar á Íslandi. Oddi styður undir keppnina með margvíslegum hætti, en meðal annars verða sérverðlaun veitt á lokahófi keppninnar til þeirra hugmynda sem skara fram úr.
„Oddi er með stærstu prentsmiðju landsins sem hefur fengi vottun norrænna umhverfismerkisins Svansins. Prentsmiðjan Oddi hefur náð þeim árangri að standast kröfur Svansins. Það tryggir að fyrirtækið er í fremstu röð hvað varðar lágmörkun neikvæðra umhverfis- og heilsuáhrifa. Verið er að votta það að umhverfisáhrif framleiðslunnar hjá Odda eru í lágmarki og að framleiðslan uppfylli kröfur um umhverfi , heilnæmi, gæði og virkni. Þetta nær til allra hráefna sem notuð eru í vinnslunni og fellur öll framleiðslan undir vottunina, bylgjukassar, öskjur, tímarit, bækur og allt almennt prentverk.
Við hjá Odda leggjum mikið upp úr því að okkar vörur séu framleiddar í sátt við umhverfið og er Svansvottunin einn áfangi af mörgum til að svo geti orðið. Umhverfisvottun Svansins er stór þáttur í að tryggja það að Oddi verði áfram í fararbroddi í íslenskum prentiðnaði hvað umhverfismál varðar“ segir Jón Ómar Erlingsson framkvæmdastjóri Odda.”

Kristján Freyr Kristjánsson, verkefnastjóri Gulleggssins og Arnar Árnason, markaðsstjóri Odda eftir undirritun samstarfssamnings Odda og Innovit 19. janúar 2010.
Til baka


Athugasemdir