January 21, 2010Sprengja í umsóknum, 295 viðskiptahugmyndir bárust inn
Búið er að loka fyrir skráningar í frumkvöðlakeppni Innovit, Gulleggið 2010. Keppnin er samstarfsverkefni framsækinna fyrirtækja á Íslandi, Samtaka Iðnaðarins, Nýsköpunarsjóðs Atvinnulífsins, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Háskólans á Bifröst og Keilis.
Undirtektir við keppninni í ár hafa verið frábærar og aldrei áður hafa jafn margar viðskiptahugmyndir vera sendar inn. Í ár bárust 295 viðskiptahugmyndir sem munu nú fá aðstoð frá sérfræðingum Innovit og samstarfsaðilum þess til að byggja upp fullmótaða viðskiptaáætlun sem skila þarf fyrir 8. mars. Þá munu tíu efstu viðskiptaáætlanirnar komast áfram á lokahóf keppninnar sem verður haldið 10. Apríl og keppast um verðlaunagripinn Gulleggið.
Heildarverðlaun í ár eru metin á meira en 3.000.000 íslenskra króna. Þá munu ýmis fyrirtæki bjóða upp á sérverðlaun til þátttakenda. Til dæmis mun Fulltingi lögfræðaþjónusta velja viðskiptahugmynd sem fær ókeypis ráðgjöf að keppni lokinni og Prentsmiðjan Oddi mun gefa efstu hugmyndum prentað efni til að hjálpa þeim að komast af stað.
Innovit, nýsköpunar og frumkvöðlasetur vonar að keppnin muni hjálpa til við að blása til stórsóknar í íslensku atvinnulífi og langar að nýta tækifærið til að þakka þeim fjölmörgu aðilum, fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum sem hafa lagt fram ómetanlega vinnu og framlag til að gera keppnina að raunveruleika í þriðja sinn.
Allar nánari upplýsingar gefur Kristján Freyr Kristjánsson, verkefnastjóri Gulleggsins. S: 690-1340, kristjan@innovit.is

Controlant, sigurvegarar Gulleggsins á síðasta ári
Til baka


Athugasemdir