February 11, 2010Ungir Íslendingar á One Young World
Nú stendur yfir One Young World fundurinn í fyrsta skipti í sögunni þar sem ungt fólk hefur tækifæri til þess að tengjast hvort öðru í þúsunda tali og hafa áhrif á það hvernig heiminum er stjórnað. Ásamt ungu fólki frá flestöllum löndum heimsins sækja heimsþekktir leiðtogar fundinn á borð við Kofi Annan, Bob Geldof, Desmond Tutu og Oscar Morales. Íslensku fulltrúarnir á ráðstefnunni hafa lokið við að flytja ræður þar sem Gunnar Hólmsteinn Gunnarsson fjallaði um jákvæð áhrif efahagslægðarinnar á Íslandi í alþjóðlegu samhengi og Berglind Ósk Bergsdóttir fjallaði um frelsi fjölmiðla.
Fundurinn sem nú stendur yfir er haldin í Excel Centre sem nýlega hýsti fund G20 ríkjanna. Boris Johnson, borgarstjóri Lundúna setti fundinn og var opnunarhátíðin í beinni útsendingu hjá BBC World News og náði til um 60 milljón hlustenda. Fjöldi fulltrúa ungs fólks á fundinum er í hlutfalli við fólksfjölda hvers lands, því Kína flesta fulltrúa, þá Indland, Bandaríkin og svo önnur lönd. Þá eiga Ísland og önnur fámennari ríki 2 fulltrúa.
Leitað var til Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlaseturs og Háskóla Íslands um að tilnefna tvo unga Íslendinga til þess að taka þátt fyrir Íslands hönd. Ákveðið var að tilnefna þau Berglindi Ósk Bergsdóttur, nema við tölvunarfræði í HÍ og formann félags tölvunarfræðinema, og Gunnar Hólmstein Guðmundsson, framkvæmdastjóra sprotafyrirtækisins CLARA. Það voru öflugir aðilar sem veittu Berglindi og Gunnari stuðning til fararinnar: Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, CCP, Vífilfell, Landsvirkjun, Félagsstofnun stúdenta, Háskóli Íslands og Innovit.
,,Á One Young World ráðstefnunni hefur okkur gefist kostur á því að ræða um framtíðarsýn íslensku þjóðarinnar og bera hana saman við öll önnur lönd í heiminum” – Berglind Ósk Bergsdóttir
Til baka


Athugasemdir