Úrslit í Gullegginu 2010 nálgast

April 8, 2010Úrslit í Gullegginu 2010 nálgast

gulleggidÚrslit fara fram í Gullegginu 2010, frumkvöðlakeppni Innovit fyrir íslenska háskólanema og nýútskrifaða, á laugardaginn. Þá munu frumkvöðlarnir að baki þeim 11 efstu af 295 viðskiptahugmyndum kynna fyrirtæki sín fyrir yfirdómnefnd keppninnar. Að loknum kynningum mun Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhenda vegleg sigurlaun og verðlaunagripinn Gulleggið 2010 við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi.

Stofnað var til keppninnar um Gulleggið af hópi háskólanema árið 2007 og er þetta því í þriðja sinn sem keppnin er haldin. Keppnin er samstarfsverkefni fjögurra háskóla, HÍ, HR, Bifrastar og keilis og öflugra fyrirtækja sem styðja við ungt fólk, atvinnusköpun og jákvæða uppbyggingu nýrra fyrirtækja.

Yfirdómnefnd keppninnar samanstendur af fjárfestum, stjórnendum úr íslensku atvinnulífi og samstarfsaðilum Frumkvöðlakeppni Innovit. Yfirdómnefnd mun ákveða hvaða hugmyndir raðast í efstu sæti keppninnar. Yfirdómnefnd skipa:

-        Baldur Már Helgason, sjóðstjóri BJARKAR

-        Benedikt K. Magnússon, meðeigandi KPMG

-        Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks

-        Gísli Hjálmtýsson, framkvæmdastjóri Thule Investments

-        Guðmundur Siemsen, framkvæmdastjóri Advel lögfræðiþjónustu

-        Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins

-        Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans

-        Hermann Ottósson, forstöðumaður Útflutningsráði Íslands

-        Jón Bjarni Gunnarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins

-        Kristín Rafnar, forstöðumaður skráningarsviðs OMX Nasdaq

-        Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans

-        Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa

-        Þórlindur Kjartansson, stjórnarmaður hjá Innovit

-        Þórólfur Árnason, stjórnarmaður hjá Innovit

Hér fyrir neðan má sjá stutt ágrip um þær 11 hugmyndir sem komust áfram í frumkvöðlakeppni Innovit sem má opinbera. Hugmyndirnar eru í handahófskenndri röð.

Icelandic Cinema Online

Icelandic Cinema Online er VoD  (Video on Demand) vefsíða með íslenskt kvikmyndaefni, þ.e kvikmyndir, heimildamyndir, stuttmyndir og sjónvarpsefni fyrir erlendan markað. Markmið síðunnar er tvíþætt. Í fyrsta lagi að skapa vettvang þar sem neytendur geta nálgast löglega fjölbreytilegt íslenskt efni á netinu til niðurhals eða straums í rauntíma. Í öðru lagi að skapa ný tækifæri fyrir kvikmyndagerðafólk og framleiðendur til að koma kvikmyndum á framfæri.

Stafræn dreifing á kvikmyndum er framtíðin og  því er nauðsynlegt er að efla þekkingu og þjónustu á þessu sviði hér á landi til efla samkeppnishæfni íslenskrar kvikmynda á alþjóða vettvangi. Gildi síðunnar er ótvírætt í framþróun á dreifingu íslenskra kvikmynda erlendis og þar af leiðandi ætti hún því að efla íslenskan kvikmyndaiðnað.

Ævintýri

Ævintýri – hótel í Hallormsstaðarskógi verður leiðandi á sviði sjálfbærrar ferðaþjónustu og þar verður byggð upp starfsemi sem er líklegt að verði burðarás í ferðaþjónustu á Íslandi í framtíðinni. Ævintýri mun verða drifkraftur í viðamiklu samstarfi við þjónustuaðila á Austurlandi, uppbyggingu atvinnulífs og umhverfismála. Ævintýri verður sjálfbært lúxushótel og það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi, vistvæn ferðaþjónusta í vistvænt vottaðri byggingu. Ævintýrapakkar verða settir saman og sameina þeir krafta þjónustuaðila á Austurlandi í að gera upplifun gesta sem eftirminnilegasta. Framtíðarsýnin er sú að gestir geti ferðast um náttúruna á ábyrgan og uppbyggjandi hátt. Gert verður útá gæði og upplifun fyrir kröfuharða neytendur á forsendum sjálfbærrar þróunar. Samhent átak er það sem þarf til að ýta úr vör þeirri þróun á sviði umhverfismála sem ætti að vera leiðandi afl á Íslandi til að gera landið enn sérstæðara og áhugaverðara.

Búngaló

Búngaló er ný nálgun á ferðamannaiðnaðinn á Íslandi. Hugmyndin felst í því að þróa og markaðssetja viðskiptalausn fyrir íslenska sumarbústaðaeigendur.  Í dag eru 12 þúsund skráðir bústaðir á Íslandi sem eru lausir 80% af árinu. Þetta þýðir að miklir möguleikar eru til staðar til að skapa tekjur hjá íslenskum sumarbústaðaeigendum með útleigu bústaðanna. Viðskiptalausn Búngaló felst í því að bjóða þessum aðilum alla nauðsynlega tæknilega aðstoð við að markaðssetja og leigja út þessa bústaði. Á sama tíma verður skapaður stærsti gagnagrunnur yfir íslenska leigubústaði og búinn til miðlæg vefsíða fyrir alla þá sem kjósa að leigja sér sumarbústað. Vefsíðan var opnuð 10.mars síðastliðin og er hægt að nálgast hana á slóðinni www.bungalo.is.

Remake electronics

Hugmyndin varðar nýja kynslóð rafmagnsöryggja sem nefnist Rafskynjari og hefur rauntíma vísun í stöðu rafmagnsálags ásamt hljóðviðvörun vegna yfirálags. Þessar upplýsingar gera notendum kleift að skilja, stjórna og hagræða rafmagnsnotkun sinni til að auka öryggi í rekstri, bæta framleiðni rafmagns og skapa sparnað með rafmagnsnotkun. Rafskynjarinn sýnir upplýsingar með lituðum ljósadíóðum og gefur hljóðviðvaranir við yfirálag rafmagns sem skapar möguleika til þess að fyrirbyggja eldsvoða vegna rafmagns, bilanir og skemmdir í raftækju. Rafskynjarinn getur einnig sent upplýsingar með þráðlausum boðum og tengst tölvukerfum, hússtjórnunarkerfum og brunavarnarkerfum.

LLS

Hugmyndin snýst um að bjóða uppá nýja tegund kennslu við tungumál sem fer að að öllu leyti í gegnum Netið. Kerfið er einfalt í notkun og býður uppá mikinn sveiganleika við námið. Það notast m.a. við gervigreind sem lærir á lærdómseiginleika notandans. Grunneiningar kerfissins eru fríir fyrir alla notendur.

Brand Capital

Brand Capital er íslenskur hugbúnaður sem er framleiddur af fyrirtækinu Transmit ehf. Hugbúnaðurinn er ætlaður til umsjónar á vörumerkjum og ímynd fyrirtækja og er aðgangur að honum seldur í áskrift. Brand Capital býður viðskiptavinum að samræma útfærslu á markaðsherferðum, auka gagnsæi við notkun markaðstengdra gagna og að auka hægræði og snerpu við útfærslu markaðsherferða.

Stórsaga – Ferðast til fortíðar.

Ætlunin er að reisa nokkur hús í 12. aldar stíl á afmörkuðu svæði; torfbæ eða skála, kirkju, smiðju, búðir og fjós. Tilgangurinn er tvenns konar: Í fyrsta lagi verður torfbærinn notaður sem hótel og boðið uppá gistingu þar sem fólk getur gist í skálanum eða búðunum og upplifað hvernig Íslendingar bjuggu fyrr á öldum. Í öðru lagi verður svæðið notað til sýninga. Þarna ynni starfsfólk sem sýndi gamalt handverk. Einnig væri í boði fyrir gesti að taka þátt í að sinna daglegum störfum, allt frá því að slá með orfi og ljá upp í eldamennsku.

Nude Magazine

Nude magazine er nettímarit um tísku  – hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Það mun koma út mánaðarlega á netinu undir nafninu Nude magazine og vera frítt. Fyrsta tölublaðið kemur út þann 25. mars næstkomandi og hafa viðtökurnar verið framar öllum vonum. Það er margt einstakt við tímaritið og allt útlit fyrir að það verði algjörlega brautryðjandi hér á landi. Tímaritið byggir á framúrskarandi tækni sem býður upp á hljóð- og myndbrot, gagnvirkni og fangar athygli lesandans um leið. Þessi tækni býður líka upp á þann mögulega að hægt er að fylgjast nákvæmlega með hversu margir lesa blaðið, hversu lengi lesendur stoppa á hverri síðu, hvar þeir klikka helst á hana o.s.frv sem hlýtur að vera draumur hvers auglýsanda. Einnig hyggjumst við vera í beinu sambandi við lesendur í gegnum blogg og samskiptavefi. Fyrirtækið hefur miklar og göfugar áætlanir fyrir íslenskan markað; að efla tískuvitund, skapa vettvang fyrir íslenska hönnuði og verslunarfólk og vera almennur gleðigjafi.

FAFU

fafu hannar og framleiðir skapandi leikföng fyrir börn. Leikföngin eru framleidd með sanngjörnum hætti og eru umhverfissjónarmið höfð að leiðarljósi við alla hönnun og framleiðslu varanna.

Andblær

Verkefnið byggir á alveg nýrri nálgun við hönnun loftræstikerfa fyrir hús sem gerir kleyft að smíða langþynnsta loftræstikerfi fyrir byggingar sem fyrirfinnst. Búnaðurinn, sem kallast Andblær, verður verulega orkusparandi og getur þannig lækkað hitunarkostnað húsa umtalsvert Loftræstibúnaðurinn verður allt að 10 sinnum þynnri en sambærilega öflug tæki á markaðinum. Búnaðurinn verður ódýrari og með meiri varmaendurvinnslu en sambærileg tæki sem mun leiða til styttri endurborgunartíma fyrir kaupendur á svæðum þar sem orka er dýr.Aðstandendur verkefnisins hafa mikla sérfræðiþekking á þessu sviði og hafa þegar tryggt sér fjölda einkaleyfa fyrir ANDBLÆ tækni sem mun gefa fyrirtækinu forskot á markaði.

Smelltu (Brand Capital)

Smelltu er íslenskur hugbúnaður sem þróaður er af fyrirtækinu Transmit ehf. Smelltu gerir auglýsendum kleift að mæla árangur netauglýsinga sinna betur en áður hefur þekkst á Íslandi og býður upp á umfangsmikið yfirlit yfir hvar fjárfesting í netauglýsingum skilar mestum árangri. Smelltu má nálgast á http://smelltu.is

Til baka

Hugskot

Rafrænt fréttabréf Innovit