Remake Electric sigrar Gulleggið 2010

April 10, 2010Remake Electric sigrar Gulleggið 2010

_MG_8911 [800x600]Sprotafyrirtækið Remake Electric sigraði í frumkvöðlakeppni Innovit um Gulleggið 2010. Remake electrics hefur þróað nýja og byltingarkennda tegund rafskynjara sem stefnt er á heimsmarkað með á næstu misserum. Stofnendur Remake hlutu að launum milljón króna peningaverðlaun, veglega ráðgjöf frá Innovit og verðlaunagripinn Gulleggið. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhenti sigurlaunin við fjölmenna athöfn á Háskólatorgi.

Verðlaunagripurinn var í ár hannaður af Ásdísi Jörundsdóttur, sem er á lokaári í vöruhönnun í Listaháskóla Íslands. Um hönnun gripsins sagði Ásdís: “Góðar hugmyndir er eitthvað sem hlúa þarf að. Gulleggið er verðlaunagripur úr postulíni sem handleika þarf af mikilli varfærni líkt og ef um góða hugmynd væri að ræða.”

1. Sæti – Remake Electric

Hugmyndin varðar nýja kynslóð rafmagnsöryggja sem nefnist Rafskynjari og hefur rauntíma vísun í stöðu rafmagnsálags ásamt hljóðviðvörun vegna yfirálags. Þessar upplýsingar gera notendum kleift að skilja, stjórna og hagræða rafmagnsnotkun sinni til að auka öryggi í rekstri, bæta framleiðni rafmagns og skapa sparnað með rafmagnsnotkun. Rafskynjarinn sýnir upplýsingar með lituðum ljósadíóðum og gefur hljóðviðvaranir við yfirálag rafmagns sem skapar möguleika til þess að fyrirbyggja eldsvoða vegna rafmagns, bilanir og skemmdir í raftækju. Rafskynjarinn getur einnig sent upplýsingar með þráðlausum boðum og tengst tölvukerfum, hússtjórnunarkerfum og brunavarnarkerfum.

2. Sæti – Brand Capital

Brand Capital er íslenskur hugbúnaður sem er framleiddur af fyrirtækinu Transmit ehf. Hugbúnaðurinn er ætlaður til umsjónar á vörumerkjum og ímynd fyrirtækja og er aðgangur að honum seldur í áskrift. Brand Capital býður viðskiptavinum að samræma útfærslu á markaðsherferðum, auka gagnsæi við notkun markaðstengdra gagna og að auka hægræði og snerpu við útfærslu markaðsherferða.

3. Sæti – Nude Magazine

Nude magazine er nettímarit um tísku  – hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Það mun koma út mánaðarlega á netinu undir nafninu Nude magazine og vera frítt. Fyrsta tölublaðið kemur út þann 25. mars næstkomandi og hafa viðtökurnar verið framar öllum vonum. Það er margt einstakt við tímaritið og allt útlit fyrir að það verði algjörlega brautryðjandi hér á landi. Tímaritið byggir á framúrskarandi tækni sem býður upp á hljóð- og myndbrot, gagnvirkni og fangar athygli lesandans um leið. Þessi tækni býður líka upp á þann mögulega að hægt er að fylgjast nákvæmlega með hversu margir lesa blaðið, hversu lengi lesendur stoppa á hverri síðu, hvar þeir klikka helst á hana o.s.frv sem hlýtur að vera draumur hvers auglýsanda. Einnig hyggjumst við vera í beinu sambandi við lesendur í gegnum blogg og samskiptavefi. Fyrirtækið hefur miklar og göfugar áætlanir fyrir íslenskan markað; að efla tískuvitund, skapa vettvang fyrir íslenska hönnuði og verslunarfólk og vera almennur gleðigjafi.

Sérstök útflutningsverðaun í boði Útflutningsráðs – Fafu

Fafu hannar og framleiðir skapandi leikföng fyrir börn. Leikföngin eru framleidd með sanngjörnum hætti og eru umhverfissjónarmið höfð að leiðarljósi við alla hönnun og framleiðslu varanna.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá úrslitum í Gullegginu. Lósmyndari: Hermann Sigurðsson (www.hemmi.is)

_MG_8681 [800x600]_MG_8704 [800x600]_MG_8720 [800x600]_MG_8755 [800x600]_MG_8819 [800x600]_MG_8887 [800x600]_MG_8911 [800x600]_MG_8926 [800x600]_MG_8928 [800x600]_MG_8934 [800x600]_MG_8953 [800x600]gullleggid1 [800x600]

Til baka

Hugskot

Rafrænt fréttabréf Innovit