Frumtak fjárfestir í Meniga

April 16, 2010Frumtak fjárfestir í Meniga

meninga2Sprotafyrirtækið Meniga hefur nú skrifað undir samning um 90 mkr. fjármögnun sem tryggir félaginu hraðari vöxt á evrópskan markað. Það er fjárfestingarsjóðurinn Frumtak sem hefur fest kaup á hlutum í Meniga og styður þannig við áframhaldandi vöxt félagsins sem náð hefur eftirtektarverðum árangri á mjög stuttum tíma.

Vefur Meniga, www.meniga.is, fór í loftið á Íslandi í desember 2009 í samstarfi við Íslandsbanka og hefur fengið frábærar viðtökur. Notendur eru nú þegar yfir 7.000 og flestir þeirra heimsækja vefinn reglulega. Samkvæmt þjónustukönnunum eru yfir 80% notenda ánægðir eða hæstánægðir með lausnina og segjast munu nota hana reglulega í framtíðinni.

Meniga var í hópi 10 úrvalsfyrirtækja sem kepptu í úrslitum í frumkvöðlakeppni Innovit, Gullegginu 2009. Frá því að Meniga tók þátt í Gullegginu fyrir einungis einu ári hefur það nýtt skrifstofuaðstöðu og ráðgjöf hjá Innovit sem sprotafyrirtæki geta nýtt sér í allt að eitt ár. Meniga er því gott dæmi um fyrirtæki sem kemur inn í Gulleggið sem framúrskarandi hugmynd og útskrifast frá Innovit um ári síðar sem vel fjármagnað sprotafyrirtæki tilbúið í öran vöxt.

Innovit óskar Meniga hjartanlega til hamingju með þennan góða árangur.

meniga_frumtak

Til baka

Hugskot

Rafrænt fréttabréf Innovit