May 27, 2010Innovit á Evrópsku fyrirtækjavikunni 2010
Innovit ásamt fleiri fyrirtækjum og stofnunum sem tilheyra stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi voru í sviðsljósinu á kynningarfundi á Grand hótel miðvikudaginn 26. maí sl. Hátt í tuttugu aðilar kynntu þjónustu sína við frumkvöðla og fyrirtæki, en markmið kynningarinnar var að veita heildaryfirsýn og skapa umræðu um stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi.
Útflutningsráð, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Rannís, Samtök iðnaðarins ásamt Hátækni- og sprotavettvangi stóðu að fundinum í tilefni að evrópsku fyrirtækjavikunni SME Week 2010 sem haldin er hátíðleg um alla Evrópu dagana 25. maí-1. júní.
Á fundinum voru tvær málstofur, annars vegar fyrir einstaklinga með nýjar viðskiptahugmyndir og fyrirtæki í startholunum og hins vegar fyrir þroskaðri sprotafyrirtæki og fyrirtæki í nýsköpun.
Gunnar Hólmsteinn frá CLARA, Hilmir Ingi Jónsson frá Remake Electric, Agnar Sigmarsson frá Transmit, Ragnheiður Eiríksdóttir frá Knitting Iceland og Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir frá Studiobility komu fram á málstofu fyrir nýjar viðskiptahugmyndir og fyrirtæki í startholunum.

Þórhildur Birgisdóttir og Sóley Jónsdóttir kynna starfsemi Innovit



Athugasemdir