July 20, 2010Kauffman Foundation fjallar um Innovit
Jonathan Orthmans, senior Fellow hjá Kauffman Foundation og forseti Global Entrepreneurship Week, fjallar um frumkvöðlastarfsemi á Íslandi í nýlegum pistli á vefsíðunni www.entrepreneurship.org. Kauffman Foundation er ein stærsta og virtasta stofnun sem styður við frumkvöðlastarfsemi í heiminum og er það mikil viðurkenning á stuðningsumhverfinu á Íslandi að starfsemin hér vekji eftirtekt á alþjóðlega vísu. Í greininni er fjallað um þann árangur sem Ísland hefur náð í frumkvöðlastarfi á undanförnum árum, vísað til þeirrar viðurkenningar sem Innovit hlaut í Dubaí fyrir skipulagningu Alþjóðlegrar athafnaviku hér á landi og MIT Global Startup Workshop ráðstefnunnar sem Innovit hafði frumkvæði að.
Grein Jonathan Orthmans: http://www.entrepreneurship.org/PolicyForum/Blog/post/2010/07/18/Iceland-Conquering-the-Economic-Crisis-with-Entrepreneurship.aspx
Til baka


Athugasemdir