Saga Innovit

Innovit var stofnað í janúar 2007 af nemendum við Háskóla Íslands. Stofnfélagar voru Andri Heiðar Kristinsson, Magnús Már Einarsson, Stefanía Sigurðardóttir, Samtök Iðnaðarins og Nýsköpunarsjóður Atvinnulífsins.

Það var sjö manna hópur fyrrverandi nemenda við Háskóla Íslands sem hóf undirbúning að stofnun Innovit á vordögum 2006. Frá þeim tíma hefur mikið vatn runnið til sjávar í starfinu, viðtökurnar hafa hvarvetna verið frábærar og starfsemin hefur vaxið mun hraðar en gert var ráð fyrir í upphafi. Undirbúningsfélag að stofnun Innovit var stofnað í janúar 2007 og á sama tíma var fyrsta skrifstofa félagsins opnuð. Fljótlega varð ljóst að mikill áhugi var fyrir starfsemi Innovit og strax í apríl var ákveðið að stækka við húsnæðiskost Innovit til þess að hægt yrði að bjóða fyrstu sprotafyrirtækjunum upp á skrifstofuaðstöðu.

Innovit var stofnað í sinni endanlegu mynd sem einkahlutafélag í almannaþágu þann 6. september 2006. Stofnfélagar voru Andri Heiðar Kristinsson, Magnús Már Einarsson, Stefanía Sigurðardóttir, Samtök iðnaðarins og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins.