Samstarfsháskólar
Hámarksárangur í nýsköpun og frumkvöðlastarfi á Íslandi næst með öflugri samvinnu ólíkra háskóla. Þrátt fyrir að skólarnir stundi heilbrigða samkeppni um nemendur, starfsfólk og rannsóknir, verða þeir að vinna saman að stuðningi við stofnun nýrra fyrirtækja. Í gegnum tíðina hafa allt of fá íslensk sprotafyrirtæki verið sterk í alþjóðlegri samkeppni og því þarf samhent átak til uppbyggingar til þess að íslensk fyrirtæki standist alþjóðlegan samanburð.
Innovit var hleypt af stað af nokkrum nemendum við Háskóla Íslands með stuðningi rektors, en frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að vinna með öllum íslenskum skólum á háskólastigi. Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Háskólinn á Bifröst hafa verið samstarfsskólar Innovit frá upphafi og árið 2008 bættist Keilir í hópinn.

Þjónusta við nemendur samstarfsskóla Innovit
Ókeypis ráðgjafatímar
Nemendum úr samstarfsskólum Innovit býðst að fá ókeypis ráðgjafatíma á meðan námi stendur og allt að fimm árum eftir útskrift. Unnið er eftir þeirri aðferðarfræði að hjálpa fólki að hjálpa sér sjálft. Frumkvöðlar geta því leitað til Innovit um álit á viðskiptahugmynd, aðstoð við mótun hugmynda, upplýsingar um fjármögnun, gerð markaðsrannsókna, viðskiptaáætlana og nánast allt er við kemur stofnun fyrirtækis.
Skrifstofuaðstaða
Nemendur sem vinna að framúrskarandi viðskiptaáætlun geta sótt um að fá skrifstofuaðstöðu hjá Innovit og haf þannig aðgang að starfsfólki Innovit. Skrifstofuaðstaðan stendur þeim til boða ókeypis í allt að eitt ár. Aðstaðan hefur reynst sprotafyrirtækjum mikil stoð á fyrstu skrefum, sérstaklega áður en stöðugt fjárstreymi hefur náðst.
Gulleggið, frumkvöðlakeppni Innovit
Gulleggið, er keppni fyrir frumkvöðla um bestu viðskiptahugmyndina. Nemendur úr samstarfsháskólum Innovit, taka virkan þátt í að stýra og skipuleggja frumkvöðlakeppnina, en það er gert að fyrirmynd frumkvöðlaseturs MIT háskóla og fjölmargra annarra. Það eru að öllu jöfnu tveir nemendur úr hverjum samstarfsskóla Innovit sem valdir eru. Með þessu fyrirkomulagi öðlast nemendur í verkefnastjórn Gulleggsins mikilvæga reynslu, kynnast öflugum fyrirtækjum í örum vexti og fá tækifæri til þess að styrkja tengslanet sitt. Hlutverk Innovit er fyrst og fremst að styðja við þátttakendur í keppninni sjálfri með námskeiðum, ráðgjöf og öðrum leiðum.
Námskeið og fræðsla
Samhliða Gullegginu, frumkvöðlakeppni Innovit, stendur Innovit fyrir röð sérsniðinna námskeiða og vinnusmiðja. Á námskeiðunum flytja þekktir leiðtogar úr atvinnulífinu fyrirlestra og er farið í gegnum fjölmörg atriði sem snúa að stofnun nýrra fyrirtækja og gerð viðskiptaáætlana. Leitast er sérstaklega eftir að nemendur úr samstarfsskólum Innovit taki þátt í námskeiðinu, en það er gjarnan kveikjan að frekari þátttöku þeirra í frumkvöðlastarfsemi.
Sumarstörf við nýsköpun
Öllum nemendum í samstarfsskólum Innovit býðst að sækja um sumarstörf við nýsköpun sem samanstanda af skemmtilegum verkefnum hjá sprotafyrirtækjum auk nýsköpunarráðgjafar fyrir stærri framsækin fyrirtæki. Vinsældir sumarstarfa við nýsköpun hafa vaxið mikið undanfarin ár, en árið 2009 sóttu tæplega 300 nemendur um störf.


