Viðskiptahugmynd
Innovit veitir ráðgjöf til þeirra sem vilja komast á næstu skref með hugmyndir sínar, og auka þar með líkurnar á að hugmyndinn geti orðið að veruleika.
Margar góðar hugmyndir falla upp fyrir þar sem hugmyndasmiðirnir gefast upp á fyrstu skrefum. Ráðgjöf Innovit miðar að því að benda hugmyndasmiðum hvert skuli leita hvað varðar fjármögnun, einkaleyfismál, lagaleg álitamál, uppbyggingu viðskiptaáætlana og annað sem getur skipt sköpum að hafa vitneskju um í fyrstu skrefum við þróun hugmyndar.
Ráðgjöfin er ókeypis fyrir nemendur og nýútskrifaða úr samstarfsháskólum Innovit en þeir eru Háskólinn í Reykjavík, Háskóli Íslands, Bifröst og Keilir. Aðrir geta einnig sóst eftir ráðgjöf en þá er fyrsti ráðgjafartími ókeypis.
Viltu koma í ráðgjöf? Sendu tölvupóst á radgjof@innovit.is og við höfum samband við þig eins fljótt og auðið er.


