Nýsköpun
Fyrirtæki, stór sem smá, geta sótt hágæða ráðgjöf hjá Innovit. Ráðgjöfin byggist á því að kanna innri starfsemi fyrirtækisins með viðurkenndum greiningum, og kanna hvernig hægt sé að styrkja fyrirtækið enn frekar.
Fengnir eru framúrskarandi háskólanemendur sem vinna verkefnin eftir leiðsögn sérfræðinga Innovit. Fyrirtækin og markaðurinn sem þau starfa á eru greind, en sú greining getur verið ólík eftir því sem hentar hverju fyrirtæki fyrir.
Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts:
„Vorið 2008 tók Innovit að sér að vinna nýsköpunarverkefni fyrir Íslandspóst, sem skilað var í septembermánuði sama ár. Er skemmst frá því að segja, að samvinna Innovit og Íslandspósts var með miklum ágætum og skilaði starfshópur Innovit afar áhugaverðu verki, sem sett var fram á skýran og vandaðan hátt í alla staði.
Þróunarvinna Innovit hefur gagnast Íslandspósti einstaklega vel og er nú unnið að frekari útfærslu og innleiðingu þeirra hugmynda, sem nýsköpunarverkefnið tók til, í samvinnu við erlendan samstarfsaðila Íslandspósts.“
Dæmi um fyrirtæki sem Innovit hefur unnið nýsköpunarverkefni fyrir
- Íslandspóstur
- Icelandic Group
- Kadeco
- Mænuskaðastofnun
- Faxaflóarhafnir


