Gulleggið
Innovit stendur árlega fyrir Gullegginu, frumkvöðlakeppni íslenskra háskólanemenda og nýútskrifaðra. Keppnin er haldin að fyrirmynd MIT háskóla í Bandaríkjunum og VentureCup á Norðurlöndunum. Meginmarkmið keppninnar er að skapa vettvang fyrir ungt athafnafólk til að öðlast þjálfun og reynslu í mótun nýrra viðskiptahugmynda og rekstri fyrirtækja. Þannig er keppnin orðin gæðastimpill á viðskiptahugmyndir og fyrir frumkvöðla sem munu á næstu árum laða að enn fleiri fjárfesta, skapa ný störf og verðmæti fyrir íslenskt þjóðfélag.
Keppnin er frábært tækifæri fyrir frumkvöðla til að koma hugmyndum sínum á framfæri og gera úr þeim raunverulegar og markvissar áætlanir sem miða að stofnun fyrirtækja. Samhliða keppninni er þátttakendum í samstarfsháskólum Innovit boðið upp á námskeið, ráðgjöf og aðstoð sérfræðinga. Frá mótun hugmyndar til áætlanagerðar og þjálfunar í samskiptum við fjárfesta.
Þátttaka í frumkvöðlakeppni Innovit er skemmtileg og krefjandi áskorun sem nýtist þátttakendum til framtíðar. Sú reynsla og þekking sem þátttakendur öðlast nýtist afar vel þegar út í atvinnulífið er komið, hvort heldur sem er hjá nýstofnuðum sprotafyrirtækjum eða stærstu fyrirtækjum landsins. Frumkvöðlakeppni Innovit er þrískipt og byggir fyrst á mótun viðskiptahugmynda, næst á gerð viðskiptaáætlana og síðast á kynningu fyrir hópi sérfræðinga og fjárfesta.
Frekari upplýsingar um Gulleggið er að finna hér



