Innovit sprotar

Innovit hefur undanfarin tvö ár stutt við fjölmörg sprotafyrirtæki og frumkvöðla sem eru að stíga sín fyrstu skref í rekstri fyrirtækja. Hjá Innovit er lögð áhersla á að styðja við fyrirtækin með fjölbreyttum hætti og skapa þeim hvetjandi umgjörð með markvissri ráðgjöf,aðstöðu, þjálfun og aðgengi að öflugu tengslaneti. Hér á næstu síðum má sjá dæmi um nokkur þeirra fyrirtækja sem hafa tekið þátt eða verið stofnuð í kjölfar þátttöku í Gullegginu eða hafa nýtt sér skrifstofuaðstöðu Innovit.

Remake Electric

ReMake Electric hefur þróað veflægt orkueftirlitskerfi byggt á rafskynjurum sem festir eru við hefðbundin rafmagnsöryggi. Orkueftirlitskerfið nýtist vel sem greiningar- og vöktunartæki sem gefur notendum, bæði á heimilum og í stærri fyrirtækjum, tækifæri á að vera upplýstir um rafmagnsnotkun ásamt álagsstöðu á rafmagnsöryggjum. Með kerfinu er því auðveldlega hægt að stuðla að og viðhalda orkusparnaði og auknu öryggi. Hilmir Ingi Jónsson frumkvöðull uppgötvaði í starfi sínu sem rafvirki að skortur var á upplýsingum til bilanaleitar og kviknaði hugmyndin í framhaldinu. ReMake Electric vann Gulleggið árið 2010 og í framhaldinu komu sterkir fjárfestar að fyrirtækinu. ReMake markaðssetur sínar vörur á alþjóðlegum markaði og hefur unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna síðan fyrirtækið sigraði Gulleggið árið 2010.

ReMake Electric var stofnað árið 2009 af Hilmi Inga Jónssyni sem einnig er framkvæmdastjóri félagsins. Stjórnarformaður ReMake síðan 2009 er Þórður Magnússon, Eyri Invest.

Heimasíða ReMake Electric er www.remake.is

ReMake hlaut 1. verðlaun í Gullegginu 2010.

Bjarmalundur

Bjarmalundur er ráðgjafarstofa um Alzheimer og öldrun sem hefur það einkum að markmiði að bæta þjónustu fyrir sjúklinga með heilabilunarsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Boðið er upp á einstaklingsviðtöl og fjölskyldufundi þar sem skjólstæðingar fá greinargóðar upplýsingar um viðkomandi sjúkdóm og hvaða lausnir eru í boði. Þá hefur Bjarmalundur samið námskrá og kennsluefni fyrir félagsliða sem vilja sérhæfa sig í umönnun sjúklinga með heilabilun, ýmist í heimahúsi eða á stofnunum.

Vefsíða: www.bjarmalundur.is
Bjarmalundur hlaut 3. verðlaun í Gullegginu 2008.

CLARA

CLARA fylgist með umræðunni á meðan hún er að gerast, hvort sem er í bloggi, á fréttasvæðum eða öðrum vettvangi þar sem neytendur geta tjáð sig og haft skoðanaskipti á internetinu. Þetta er gert sjálfvirkt og á rauntíma með aðstoð gervigreindar. Með þessari þjónustu hjálpar CLARA fyrirtækjum að öðlast dýpri innsýn inn í almenningsálitið, hvernig það þróast og hvað það er sem hefur áhrif. Þjónustan sem CLARA býður upp á auðveldar fyrirtækjum að stunda beittara markaðsstarf og vöruþróun. CLARA er stutt af Tækniþróunarsjóði Rannís og Háskóla Íslands.

Vefsíða: www.clara.is
CLARA hlaut 2. sæti í Gullegginu 2008 og nýtti skrifstofuaðstöðu Innovit frá Maí 2008-2009.

Controlant

Markmið Controlant er að verða leiðandi þjónustufyrirtæki á sviði ferilvöktunar matvæla, ástandsmælinga og stýringa í iðnaði. Grunnkerfi Controlant kallast /CMS/ og er þráðlaust miðlunarkerfi sem býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika. Heildarlausnir Controlant á sviði þráðlausra mælikerfa og miðlunar, geymslu og úrvinnslu gagna gerir rekstraraðilum kleift að hafa eftirlit með rekstrarþáttum á hagkvæmari og einfaldari hátt en áður. Kostir kerfisins og sveigjanleiki þess nýtast vel við lausn krefjandi vandamála svo sem í ferilvöktun matvæla, eftirliti með birgðastöðu og vöktun á ástandi mannvirkja.

Vefsíða: www.controlant.com
Controlant sigraði í Gullegginu 2009

Eff2 technologies

Eff2 Technologies er sprotafyrirtæki úr Háskólanum í Reykjavík. Fyrirtækið veitir þjónustu, VIDENTIFIER ™ Forensic, sem greinir sjálfkrafa myndefni í lögreglurannsóknum, smáum sem stórum. Hugbúnaður Eff2 hefur getur til þess að greina yfir klukkutíma video efni á undir einni mínútu. Fyrirtækið var stofnað árið 2007 og stefnir á að vera leiðandi á heimsvísu í að bera sjálfvirk kennsl á videoefni.

Vefsíða: www.eff2.net
Eff2 sigraði í Gullegginu 2008

FAFU TOYS

FAFU hannar leikföng sem eru hugsuð til þess að örva hugvit barna á meðan þau leika sér. Leikföngin eru hönnuð til þess að hjálpa börnum að skilja veröldina í kringum sig. Þessu er meðal annars náð fram með örvandi litum og formum sem hjálpa til að styrkja sköpunargleði barna. Leikföngin verða framleidd af viðurkenndum fair trade framleiðsluaðilum.

Vefsíða: www.fafutoys.com
FAFU tók þátt í Gullegginu 2009

GlobalCall

Globalcall er símafyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun á VoIP (Voice over IP) lausnum. Með nýtingu þeirra geta einstaklingar og fyrirtæki sparað sér umtalsverðar upphæðir í síma- og samskiptakostnaði. Fyrirtækið býður nú þegar upp á ódýr útlandasímtöl gegnum GlobalCall símakortin sem fást víðsvegar um landið. GlobalCall er íslenskt fyrirtæki sem var stofnað snemma árs 2008. Fyrirtækið er sjálfstætt og ekki tengt öðrum símafyrirtækjum með neinum hætti.

Vefsíða: www.globalcall.is
GlobalCall hefur nýtt skrifstofuaðstöðu Innovit frá ágúst 2008.

Kolka – kolefnisviðskipti & ráðgjöf

Kolka er viðskipta og ráðgjafastofa með kolefniskredit. Kolefnismarkaðir hafa vaxið mikið að stærð og virði undanfarin ár. Markmið fyrirtækisins er að veita víðtæka sérfræðiráðgjöf á sviði kolefnismála og sjá um viðskipti með slíkar heimildir. Með slíkum viðskiptum verður skapaður raunverulegur grundvöllur til verðmætasköpunar með losunarheimildir og framleiðslu á kolefniskreditum með bindingu kolefnis.

Vefsíða: www.kolka.is
Kolka varð til í kjölfar nýsköpunarverkefnis á vegum Innovit og hefur nýtt skrifstofuaðstöðu frá Maí 2009.

Lifandi ráðgjöf

Lifandi Ráðgjöf er fræðslu- og ráðgjafafyrirtæki um áfengis- og vímuefnamál fyrir höfuðborgarsvæðið og landsbyggðina. Aðalstarfsami Lifandi ráðgjafar er forvarnarfræðsla og gerð kennsluefnis í grunn- og framhaldsskólum landsins. Einnig býður Lifandi ráðgjöf upp á námskeið fyrir foreldra og fræðslu fyrir kennara og námsráðgjafa.

Vefsíða: www.lifandiradgjof.is
Lifandi ráðgjöf tók þátt í Gullegginu 2009 og var meðal efstu 10 viðskiptahugmynda

Meniga

Meniga er tæknifyrirtæki sem þróar veflausnir sem hjálpa fólki að ná betri tökum á heimilisfjármálunum. Lausnirnar stuðla að auknu fjármálalæsi og auðveldun í flokkun útgjalda. Þetta leiðir til frekari sparnaðar og betri nýtingu á þeim peningum sem fólk hefur úr að spila. Vefur Meniga fer í loftið haustið 2009 á Íslandi og stefnt er á Evrópumarkað árið 2010.

Vefsíða: www.meniga.is
Meniga komst í úrslit Gulleggsins árið 2009 og hefur nýtt skrifstofuaðstöðu Innovit frá maí 2009.

MindGames

MindGames býr til tölvuleiki sem efla lífsleikni notenda. Fyrstu leikirnir verða fyrir farsíma og munu þjálfa spilara í aðferðum sem auka einbeitingu og draga úr streitu. Spilarar stýra leiknum með huganum og til þess eru notuð heyrnatól með skynjara fyrir heilabylgjur. Slík tæki eru nú komin á markað fyrir hinn almenna notanda. Leikirnir eru krefjandi og reyna á hugsun spilara, sem gerir þá jafnframt skemmtilegri og eftirsóknaverðari.

Vefsíða: www.mindgames.is
MindGames komst í úrslit Gulleggsins árið 2009

Primúla

Primula hefur umsjón með vöruþróun örlánavefs sem kallast Uppspretta. Hlutverk Uppsprettu er að leiða saman fólk, hugmyndir og lánsfé og miðla greiðslum á milli lántakanda og lánveitenda. Hægt er að óska eftir örláni eða lána til annarra. Lántaki setur fram sínar hugmyndir og óskir á vefnum og laðar þannig að sér lánveitendur.  Vaxtakjörin ákveða lánveitendur og lántakendur sín á milli.

Vefsíða: www.uppspretta.is
Primúla tók þátt í Gullegginu 2009

Responsible Surfing

Responsible Surfing hefur þróað farsímalausn sem er öryggisvarnarhugbúnaðar, sérstaklega ætlaður foreldrum barna sem eiga farsíma. Vandamál vegna ofnotkunar á tölvum að hrjá 6-10% netnotenda og eru að verða aðalorsök brottfalls úr framhaldskóla. Búnaðurinn verður með lausnir til að hindra og bregðast við rafrænu einelti, staðsetja síma barna og stýra kostnaði símreikninga. Responsible Surfing hefur einnig þróað veflausnir fyrir heimili, skóla og fyrirtæki.

Vefsíða: www.responsiblesurfing.com
Responsible Surfing hlaut 2. sæti í Gullegginu 2009

Risk ehf.

Verkefnið byggist á smíði upplýsingatæknihugbúnaðs í formi áhættureiknivélar sem metur sjálfvirkt áhættu sykursjúks einstaklings á augnsjúkdómum og sjónskerðingu vegna sykursýki. Upplýsingar um þekkta áhættuþætti s.s. tegund og tímalengd sykursýki, langtíma blóðsykur og blóðþrýsting eru skráðar fyrir hvern einstakling og hugbúnaðurinn metur áhættu einstaklingsins. Þessi áhættugreining mun gefa til kynna skimunartíðni sykursjúkra og því hagræða tíðni skimunar eftir því sem við á og þar af leiðandi spara fjármuni í framhaldinu.

Vefsíða: www.risk.is
Risk ehf. tók þátt í Gullegginu 2009 og var meðal efstu 10 viðskiptahugmynda

Tæknibrú

Tæknibrú sérhæfir sig í fræðslu- og þjónustulausnum sem brúa stafræna bilið milli aldurshópa.  Eins og flestir vita þá eiga okkar eldri kynslóðir í verulegum erfiðleikum með upplýsingatækni og segja má að myndast stafræn gjá milli kynslóða. Meginmarkmið fyrirtækisins er að efla upplýsingalæsi eldri borgara og auka nýtingu helstu þjónustuvefja stofnana og fyrirtækja.

Vefsíða: væntanleg
Tæknibrú komst í úrslit í Gullegginu 2009

Vinun

Vinun er ráðgjafa- og þjónustumiðstöð sem veitir persónumiðaða þjónustu sem tekur mið af einstaklingnum sjálfum og þörfum hans. Markhópur Vinunar er fólk sem þarfnast aðstoðar vegna fötlunar, veikinda, slysa og /eða öldrunar. Þjónustan er sveigjanleg, hægt að bjóða upp á hana með stuttum fyrivara og á öllum tímum sólarhringsins. Um er að ræða almenna umönnun, hjúkrun eða stuðning í félagslegum athöfnum.

Vefsíða: www.vinun.is
Stofnandi Vinunar hefur sótt námskeið hjá Innovit, auk þess sem starfsmenn Innovit hafa veitt ráðgjöf varðandi útboð ríkiskaupa á heimaþjónustu.

Ymir Mobile

Ymir Mobile sérhæfir sig í hugbúnaðargerð fyrir allar tegundir af farsímum og lófatölvum. Fyrirtækið hefur útbúið farsímalausn sem veitir upplýsingar um tiltekna viðburði í Reykjavík, til dæmis varðandi menningarnótt og Vetrarhátíð. Þá framleiðir fyrirtækið eigin afurðir,til dæmis farsímaleiki fyrir erlenda markaði og gagnvirka ferðahandbók í samstarfi við Reykjavíkurborg. Einnig tekur fyrirtækið að sér sérsniðnar farsímalausnir fyrir fyrirtæki.

Vefsíða: www.ymir.is
Ymir Mobile hefur nýtt skrifstofuaðstöðu hjá Innovit frá október 2008