Um Innovit

Innovit er nýsköpunar og frumkvöðlasetur sem hvetur til athafnasemi með viðburðum, ráðgjöf og þjónustu

Innovit var stofnað af háskólanemum árið 2007 og er einkarekið frumkvöðlasetur sem rekið er í almannaþágu. Innovit starfar sem nýsköpunar- og frumkvöðlasetur fyrir kraftmikið og metnaðarfullt fólk með góðar viðskiptahugmyndir þar sem lögð er megináhersla á viðskiptatækifæri sem spretta úr starfi íslenskra háskóla.

Megin tilgangur Innovit er að virkja frumkvæði og athafnasemi ungs fólks á Íslandi og aðstoða við að hrinda viðskiptahugmyndum í framkvæmd með stofnun árangursríkra fyrirtækja að leiðarljósi. Stuðlað hefur verið að samstarfi við fremstu frumkvöðlasetur í heiminum til þess að umhverfi frumkvöðla á Íslandi verði með besta móti. Hjá Innovit fá háskólanemar og nýbrautskráðir einstaklingar faglega ráðgjöf og fyrsta flokks aðstöðu til að stofna ný fyrirtæki.

Á undanförnum tveimur árum hafa starfsmenn og ráðgjafar á vegum Innovit byggt upp umfangsmikið tengslanet, og sankað að sér þekkingu á stofnun, rekstri og fjármögnun nýrra fyrirtækja á Íslandi. Sú þekking hefur á þessu tímabili verið nýtt til að þróa nýjar lausnir og sérhæfða þjónustu fyrir frumkvöðla, fyrirtæki, fjárfesta og háskóla. Framtíðarsýn fyrirtækisins er að litið verði á Innovit sem gæðastimpil fyrir það ferli sem sprotafyrirtæki og einstaklingar ganga í gegnum þegar koma þarf góðum hugmyndum í réttan farveg.

Hugskot

Rafrænt fréttabréf Innovit