Ráðgjöf
Á undanförnum árum hafa starfsmenn og ráðgjafar á vegum Innovit byggt upp umfangsmikið tengslanet og sankað að sér þekkingu á stofnun, rekstri og fjármögnun nýrra fyrirtækja á Íslandi. Sú þekking hefur á þessu tímabili verið nýtt til að þróa nýjar lausnir og sérhæfða þjónustu fyrir frumkvöðla, fyrirtæki, fjárfesta og háskóla. Framtíðarsýn fyrirtækisins er að litið verði á Innovit sem gæðastimpil fyrir það ferli sem sprotafyrirtæki og einstaklingar ganga í gegnum þegar koma þarf góðum hugmyndum í réttan farveg.
Ráðgjöf Innovit skiptist í þrjú meginsvið og geta einstaklingar með nýsprottnar hugmyndir, öflug sprotafyrirtæki í vexti eða almenn fyrirtæki sótt ráðgjöf hjá Innovit.
Ráðgjöfin er hugsuð til þess að fleiri hugmyndir verði að fyrirtækjum, að fleiri fyrirtæki nái fótfestu og að opna augu íslenskra fyrirtækja fyrir nýjum tækifærum á sviði nýsköpunar.
Nánari upplýsingar um ráðgjöf Innovit má finna á síðunum hér til vinstri.


